Ánægjulegt
fös. 13.4.2007
að sjá að fylgi Frjálslyndra er á uppleið.
Eitt sem er áhyggjuefni samkvæmt þessari könnun er að ríkisstjórnin heldur velli.
Athyglisvert er einnig tap VG sem og lítið fylgi Í listans, þó það þurfi kannski ekki beinlínis að koma á óvart, ég tel að almeningur í landinu sé komin með uppí kok af allri þessari umhverfis umræðu, (sem þó vissulega er full þörf á að ræða) og að kosið verði um efnahag þessa lands.
Þó ég nánast aldrei sé sammála fyrrum skólabróður mínum úr FB, Eiríki Bergmann, þá verð ég að vera sammála því sem hann segir í grein í Blaðinu í dag, en þar segir " Nú tala allir um budduna, með einum eða öðrum hætti. Önnur mál svo sem umhverfismál, sem verið hafa ofarlega í umræðunni undanfarið, eru smám saman að víkja fyrir auknum áherslum á efnahags og atvinnumál. Eins og alltaf."
Finnst mér eins og mörgum að framboð Ómars sé í raun og veru vatn á myllu stjórnarinnar og að hann í raun hjálpi helstu andstæðingum sínum að halda velli, með því að vera að plokka í fylgi hinna stjórnarandstöðuflokkana.
Hvað um það, könnun Blaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna nú mánuði fyrir kosninga er samt sem áður kannski ekki alveg marktæk þar sem einungis 54,7% tóku afstöðu og 36,7% voru óákveðin.
Er það einna helst fylgi D-listans sem ég ekki hef trú á að haldi, ég hef áður spáð því að sjallarnir muni fá uþb. 35-38% fylgi, sem ég tel vera raunfylgi þeirra.
Dregur úr fylgi VG samkvæmt könnun Blaðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Kárahnjúkum var sökkt og Ómar grét.
Frjálslyndir klofnuðu, ó Margrét.
Bölvað vitleysisframboð ef þú spyrð mig.
J. Einar Valur Bjarnason Maack , 13.4.2007 kl. 17:25
Ég hef ekki trú á því að þau skipti sköpum í þessum kosningum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2007 kl. 09:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.