Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stefna VG í innflytjendamálum

er hér að neðan tekið af síðu Sóleyjar Tómasdóttur

  • Lýðræði og mannréttindi - þar sem lagt er upp úr að opna samfélagið og aðlaga svo innflytjendur geti verið virkir þátttakendur á eigin forsendum.
  • Velferðar og heilbrigðismál - þar sem gert er ráð fyrir að allir sem hingað koma geti nýtt sér grunnþjónustu samfélagsins.
  • Atvinnumál - þar sem mikilvægustu aðgerðirnar eru að tryggja atvinnufrelsi einstaklinga, koma í veg fyrir mismunun og gæta þess að upplýsingar um réttindi og skyldur komist til skila.
  • Menntun innflytjenda - þar sem lagt er upp úr að innflytjendur fái menntun sína metna að verðleikum og að þeir hafi sama aðgang að LÍN og aðrir íbúar landsins.
  • Skólamál - þar sem fjallað er um fjölmenningarfræðslu, móðurmálskennslu og íslensku sem annað móðurmál, sem og stuðning við fjölskyldur innflytjenda og samskipti við þær.
  • Íslenskukennsla er svo lokakaflinn, en þar er gert ráð fyrir kennslu á kostnað samfélagsins fyrir innflytjendur.

Að neðan getur að líta þann hluta stjórmálayfirlýsingar FF sem snýr að innflytjendum, og var samþykkt á landsfundinum í Janúar.

-----------------------------------------------------------------------

4. Málefni innflytjenda:

Frjálslyndi flokkurinn metur mikils vinnuframlag erlends fólks við uppbyggingarstarf í íslensku samfélagi síðustu misserin.

Margt af þessu fólki mun dvelja hér langdvölum og ber samfélaginu skylda til að veita því stuðning og hjálp til aðlagast íslensku samfélagi, m.a. með íslenskukennslu.

Frjálslyndi flokkurinn telur afar nauðsynlegt að stjórnvöld hafi fullt eftirlit með komu erlends verkafólks inn á vinnumarkaðinn og tryggi að réttur þess sé virtur og aðbúnaður mannsæmandi. Flokkurinn telur að fólk sem hingað kemur eigi að geta notað sína menntun og fagþekkingu á innlendum vinnumarkaði, enda sé fullgildum skírteinum framvísað.

Frjálslyndi flokkurinn mun þó beita sér fyrir að undanþága sú, sem samið var um í EES-samningnum, varðandi innflutning verkafólks frá aðildarlöndum EES, verði nýtt og innflutningur takmarkaður, í samræmi við ákvörðun íslenskra stjórnvalda.

Yfirvöld verða á öllum tímum að hafa stjórn á því hverjir og hvað margir innflytjendur koma til landsins. Jafnframt ber öllum, sem sækja hér um dvalarleyfi, að skuldbinda sig til að hlíta íslenskum lögum og stjórnarskrá.

Frjálslyndi flokkurinn varaði á Alþingi við afleiðingum þess að nýta ekki undanþáguákvæði um frjálst streymi fólks frá nýju aðildarlöndum Evrópusambandsins til landsins. Ríkisstjórnin neitaði að hlusta á þau varnaðarorð sem þingmenn Frjálslynda flokksins höfðu uppi, auk þess sem ríkisstjórnin vanrækti að marka stefnu í málefnum innflytjenda.

Ekkert gerðist í þessum málum fyrr en Frjálslyndi flokkurinn hóf umræður um innflytjendamál sl. haust.

Íslenskt þjóðfélag er að breytast í fjölmenningarþjóðfélag og er afar mikilvægt að nýir borgarar aðlagist samfélaginu og kynnist menningu þjóðarinnar og tungu.

-----------------------------------------------

Geta fleiri en ég séð margt sameiginlegt með stefnu þessara tveggja flokka í innflytjendamálum....? Einhver?


Hvað er hægt að segja

annað en að þetta er hreinasta snilld, The treble here we come......Tounge

 


mbl.is Man.Utd. rótburstaði Roma, 7:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ha ha ha......

Hér er komin, í smækkaðri mynd, teikningar Jyllands Posten af spámanninum Múhamed.

Amerískur prófessor "vogar" sér að velja Ísland af handahófi (ímynda ég mér) hefði eins getað verið Luxemborg eða Færeyjar, sem target fyrir sprengjur amerískar.... (í gríni nota bene)

....hvað gerist hér á hinu mjög svo hátíðlega Íslandi? Jú, við tryllumst og sendum hótunarbréf til proffans, erum semsagt ekkert betri en þeir öfgatrúuðu múslimar sem brenndu danskar bækur og danska fánann á sínum tíma vegna þess að einhverjir spaugarar í DK "voguðu" sér að teikna skopmyndir af Muhamed.

Við frónbúar erum svo merkileg með okkur að það má ekkert segja eða gera sem særir þjóðernisvitund okkar, sbr. þjóðsönginn í spaugstofunni ofl.

Þjóðsöng sem bæ ðe vei, fáir geta sungið eða þekkja frá upphafi til enda, og í fjölda ára hefur farið halloka í vinsældum, þar sem margir telja að Ísland er land þitt væri mun betra sem þjóðsöngur okkar.

Já það er ekki ofsögum sagt af okkar góðu þjóð, kannski komin tími til að stíga niður úr fílabeinsturninum....

 

 


mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef framfarir eru ekki málið

hvað er þá málið, afturfarir, ekki getum við staðið í stað, einfaldlega vegna þess að allt í heimi hér er annahvort á uppleið eða niðurleið, ekkert stendur í stað!

Ljóst er því að biskup vor vill afturför, sem og alltof stór hluti þjóðarinnar, samkvæmt skoðanakönnunum síðustu vikna, sem segja að allt að rúmlega 1/4 þjóðarinnar ætli sér að kjósa Vinstri Galna og þar með efnahagslegan kjarnorkuvetur......Frown

Reyndar hef ég litla trú á skoðanakönnunum einfaldlega vegna þess að svarhlutfallið er ansi lítið, einungis um 60% svara eða taka afstöðu, þetta tel ég að muni breytast á kosningadegi, spá mín fyrir komandi kosningar er þanning

Sjallarnir 35-38%

Framsókn 8-11%

Samfylking 22-25%

Vinstri G. 13-16%

Frjálslyndir 9-12%

Ómar og co undir 5%

Stjórnin fellur, en gæti með stuðningi FF haldið vellið, annar möguleiki er að sjálfsögðu kaffibandalagið, nú eða jafnvel samfó, vg og framsókn þó ekki sé það vænlegt og greinilega ekki vilji þjóðarinnnar, þar sem tveir af þessum þremur flokkum eru að tapa töluverðu fylgi.

Gleðilega páska.

 


mbl.is Áherslan á endalausar framfarir er tál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnir hve þörf umræðan er

og á Frjálslyndi flokkurinn hrós skilið fyrir að þora að taka umræðuna upp og einnig fyrir að hafa tekið við öllum þeim barsmíðum sem á honum hafa dunið æ síðan, en engu að síður staðið uppréttir og ekki hvikað í neinu frá sínum skoðunum.

Ekki er nokkur vafi á því að þetta er löngu tímabær umræða, og svo virðist vera sem að Frjálslyndir flokkurinn sé eina stjórnmálaaflið í landinu sem þorir að taka á þessu viðkvæma máli og segja hlutina eins og þeir eru.

Meðan pissudúkkurnar í hinum flokkunum hoppa í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut og fordæma FF fyrir eitt og annað sem á enga stoð í raunveruleikanum, hvar er umburðarlyndið og virðingin fyrir tjáningarfrelsi og skoðunum annara?

Að kasta steinum úr glerhúsi er þetta víst kallað! Shocking

Er ekki komin tími á hina flokkana að einbeita sér að sjálfum sér og sínum baráttumálum, í stað þess að eyða öllu púðrinu í að rakka niður FF, ég er ekki viss um að það gefi mörg atkvæði af sér.

Don´t shoot the messenger, listen to the message!

Linka hér á stórgóða grein Kristins H um innflytjendamál og verðbólgu.


mbl.is Segir Frakka vera að missa þolinmæðina vegna innflytjenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski þetta sýni hvar við stöndum

í veruleikanum, að aðeins 8169 manns hafi skrifað undir segir mér að þessi svokallaða umhverfis vitund risti ekki dýpra en svo að þegar á að setja nafn og kt. við hana þá hoppa margir frá....

....eða þá að hreinlega það sé ekki meiri áhugi fyrir þessu en þetta, amk hefur ansi oft verið safnað fleiri undirskriftum fyrir önnur málefni á mun skemmri tíma.....

Þetta hlýtur að teljast misheppnað plot hjá Ómari og félögum, sem vilja byggja landið upp á einhverju öðru....

.....gallinn er bara að það er erfitt að fá upp úr þeim hvað þetta annað er, og hvort það gefi sömu laun fyrir óbreyttan verkamann og starf í kerskála Norðuráls....

Já, ég trúi því að þetta þýði að okkar stóra land byggir að mestu leyti mjög skynsamt fólk sem gerir sér grein fyrir því að það er erfitt að lifa á "einhverju öðru"......

Að sjálfsögðu er hátækniiðnaður hið besta mál og mun ég fagna því ef slíkur iðnaður myndi rísa á Íslandi, tilfellið er bara að við slíkan iðnað væri að mestu leyti frekar vel menntað fólk sem fengi störf.

Ljóst er að ekki allir fengju vinnu við hvorki ferðamannabransann eða hátækniiðnað, túrista bransinn er nátturlega einungis í ca. 3 mánuði á ári, hvað eigum við að gera restina af árinu...

....já þegar stórt er spurt...

 


mbl.is Nærri 8200 hafa skrifað undir sáttmála Framtíðarlandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er þetta

Rakst á eftirfarandi pistil  á netinu -- verð að afrita hann hingað!

 

"Þjóðarsáttmáli Fortíðarlandsins:

-Við heitum því að nýta okkur aldrei nokkurn snefil af tækninýjungum eða hátækni
-Við heitum því að leggja niður allar virkjanir og hætta umsvifalaust allri orkunotkun á Íslandi
-Við heitum því að stunda einvörðungu sjálfsþurftarbúskap og snerta ekki auðlindir landsins
-Við heitum því að gera Ísland aftur að fátækustu og vanþróuðustu þjóð Evrópu líkt og við vorum fyrir 100 árum!

Látum nú hendur standa fram úr ermum góðir íslendingar og skrifum undir þjóðarsáttmála Fortíðarlandsins. Við megum ekki láta glepjast af gylliboðum hátæknialdarinnar og þeytast áfram upp lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör og gæði, látum staðar numið og snúum aftur á slóðir forfeðranna, aftur til fornalda!

Sjálfsþurftarbúskapur eða dauði!
-Fortíðarlandið"

 

Og í ritskýringu var spurt, hvort þetta minni ekki svolítið á ónefndan stjórnmálaflokk?

Hreinasta snilld.....


mbl.is Glitnir: leiðrétta þarf ójafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög gott framtak

hjá þeim í Múrbúðinni og löngu tímabært.

Neytendur eru ansi oft blekktir með alskyns "útsölu tilboðum" eða bara "tilboðum" og frumskógurinn getur verið svo mikill að það er ekki nokkur leið að átta sig á því hvað er í gangi, eins og þeir benda á hérna. Oft á tíðum hefur maður á tilfinningunni að fyrst sé verðið hækkað og síðan er auglýst "útsala" frá því verði.

Þekkt er að ákveðin stórfyrirtæki auglýsi svokallaða verðvernd (prisgaranti) þar sem neytenda er lofað að ef varan finnist ódýrari annarstaðar fæst verðmunurinn greiddur.

Það sem aftur á móti er minna þekkt er að sömu fyritæki ná sérsamningum við ákveðna framleiðendur (td. heimilistækja framleiðendur) um framleiðslu á tækjum fyrir verslunarkeðjur sínar.  Tiltekin tæki bera kannski týpunúmer 406043E og eru einungis seld í verslunum ákveðinnar verslunarkeðju, samskonar tæki er svo selt í verslun samkepnis aðilans en ber týpunúmerið 406043EU.

Það sér því hver maður að þarna er neytendanum snúið í þvílíkan hring að erfitt er að gera verðsamanburð, eins viðurkenna framleiðendur að tækin beri týpunúmer eftir því hvaða land er framleitt fyrir þannig að verðsamanburður á milli landa getur einnig verið erfiður.

Ég keypti uppþvottavél af gerðinni AEG í fyrrasumar í Danmörku áður en af kaupunum varð leitaði ég eftir sömu vél hér heima en fann hana hvergi aftur á móti fann ég nánast eins vél með týpunúmer mjög svipað og á minni vél, verðmunur ca. 40þ íslenskar, mín kostaði 4000dkr. (ca. 47þ isk. á genginu þá) meðan þessi "íslenska" kostaði yfir 80þ.

Ég á erfitt með að goodera að það kosti meira en 40þ að flytja eina uppþvottavél til íslands..... fullur gámur af vörum kostar í sjófragt frá Danmörku hingað komin e-ð í kringum 150-200þ fyrir mig sem einstakling, það er á hreinu að innflytjendur fá einhvern afslátt, gefum okkur ca. 20% þá kostar gámurinn kannski í kringum 120-160þ.

Í einum 20 feta gám er hægt að koma fyrir ca. 56 þvottavélum sem gerir að pr. vél er flutningskostnaðurinn í mesta lagi 3000kr. síðan eru að sjálfsögðu einhverjir tollar og annað bull sem ríkið tekur, þannig að við erum kannski að tala um ca. 10.000 í mesta lagi pr. vél, samt leyfa þessir glæpamenn sér að að selja samskonar vél 40þ kr. dýrari en hún kostar út úr búð í Danmörku.....

.....hvaða rugl er þetta eiginlega.... 


mbl.is Segja afsláttarmálningu aldrei hafa verið selda á upprunalegu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í fyrsta sinn

sem markaðurinn hrynur í DK, þetta gerðist einnig (ef ég man rétt) í kringum 1985, og upp úr 1995 fór allt af stað aftur og virðist hafa náð toppi í dag.

1997 skoðuðum við hjónin hús í Græsted (höfuðborg Norðursjálands LoL) eitt var endaraðhús á ca. 550þ dkr og annað var gamalt einbýlishús í elsta hluta bæjarins og var ásett verð umþ. 650þ dkr. þetta gamla hús var til sölu aftur haustið 2005 á 1,7 millljón og raðhúsin voru yfirleitt að seljast á ca. 1,4-1,6 milljónir á sama tíma.

Annað dæmi. í byrjun árs 2004 talaði ég við fasteignasala sem sagði mér að allir þéttbýlis kjarnar hefðu ákveðin topp í fasteignaverði og að í Græsted væri þessi toppur 2 mill.  til að fara yfir það þyrfti húsið að vera einstaklega flott og velbúið, á þessum tíma var eitt hús á yfir 2 mill. Umþ. 1½ ári seinna var mjög erfitt að finna hús undir 2 mill. í Græsted. 

Þannig að ljóst er að þetta breytist hratt, en núna virðist vera að koma stopp og jafnvel lækkun, enda getur verð ekki hækkað endalaust.  Það sem danskir húseigendur hafa framyfir okkur hérna á klakanum er að þeir hafa verið að borga af höfuðstól lána sinna og lánin hafa þal. lækkað, þar sem að engin verðtrygging er á lánum í DK, frekar en öðrum löndum í hinum vestræna heimi.

Það þarf að fylgja með í sögunni að fyrir 3-4 árum byrjuðu bankar í DK að bjóða afborgunar laus lán í allt að 10 ár þe. þá eru einungis greiddir vextir, en ekki af láninu sjálfu, að sjálfsögðu voru einhverjir sem að skuldbreyttu lánum sínum eða keyptu á þannig lánum, en það breytir því ekki að lánið hefur EKKI hækkað, eins og gerist hér á landi.

Lítið dæmi, úr þessari færslu

Húsnæðislán uppá kr. 12.400.000 tekið í okt. 2005 á 4,15% vöxtum með fyrstu greiðslu í des 2005, stendur í dag í kr. 12.979.366 þrátt fyrir að á þessum tíma hafi verið greitt kr. 1.022.058, semsagt lánið hefur hækkað um 600þ. á þessum tíma.... ekki að ógleymdum 400þ. kr. lántökukostnaði, sem er meðal annars 1,5% nefskattur í ríkiskassann, meðan annarsstaðar í heiminum er notast við fastar upphæðir í lántökugjöldum.

Hvaða rugl er þetta eiginlega.....

Er ekki tímabært að stjórnvöld þessa lands afnemir þennan okurskatt á launþega sem verðtrygging lána er?

kv. af skaga

PS.  X við F í kosningum til alþingis í vor eykur líkurnar á afnámi verðtryggingar lána til muna.


mbl.is Mikil lækkun yfirvofandi á danska fasteignamarkaðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóst að hagur launfólks í landinu

stórbatnar komist Frjálslyndir í stjórn og berjist fyrir afnámi verðtrygginar á lánsfé, hækkun skattleysismarka og bættum kjörum aldraðra og öryrkja, ræðu Magnúsar má nálgast á heimasíðu hans magnusthor.is 

Frálslyndir eru á réttri leið með barráttumál sín, breyting á gjafakvótakerfinu er fyrir löngu orðin tímabær sem og mannréttindi erlends vinnuafls sem víðast býr við ansi bág kjör.

Kv. af skaga.


mbl.is Magnús Þór: Hækka ber skattleysismörk í 150.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband