Það er að minnsta kosti

deginum ljósara að það er stemming í landinu fyrir því skipta um ríkisstjórn.  Allt bendir til að Framsókn þurkist út í næstu kosningum, eða svo gott sem, íhaldið fær væntanlega sín 37-8%, Samfylking og VG munu vera í kringum 20% hvor og Frjálslyndir ca. 11-13%. Restinni munu Framsókn og aðrir smáflokkar skipta á milli sín.

Þarna er kominn grundvöllur fyrir 3 flokka stjórn FF, VG og Samfylkingar. Það er óskandi að þetta verði útkoman úr kosningunum í vor, það er löngu komin tími til að losna við íhaldið úr ríkisstjórn, ríkisstjórn sem er skítsama um launþegana í landinu, öryrkjana og gamla fólkið. Þeir hafa verið duglegir að berja sér á brjóst fyrir góða afkomu ríkiskassans undanfarin ár, en hafa launþegar þessa lands séð þessa aura í sínum buddum?

Þar sem að afkoman er svona góð hvernig væri þá að hækka skattleysismörk úr 90þ uppí 150þ eða amk, uppí lágmarks laun, þannig að þeir lægstlaunuðu fengju að halda megninu af laununum sínum.

Nei það virðist ekki vera á stefnuskrá stjórnarinnar, enda um hægri stjórn að ræða sem eingöngu hyglir sínum þe. fyrirtækjum og fjármagnseigendum. 

kv. af skaga.

 


mbl.is Steingrímur: Bullandi stemning fyrir því að fella ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Við verður nokkur stödd í Skrúðgarðinum um kl. 13 á morgun til að taka út staðinn fyrir aðalbloggvinafundinn sem verður í apríl! Hjartanlega velkominn!

Guðríður Haraldsdóttir, 23.2.2007 kl. 19:09

2 Smámynd: Einar Ben

Takk fyrir það mín kæra, er reyndar að vinna til 15.30 en geri ráð fyrir að koma við í "garðinum" á leiðinni heim, það er svo einstaklega gott kaffið hjá henni Maríu.

Einar Ben, 23.2.2007 kl. 19:19

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

  Það er stórfurðulegt að í byrjun  21 aldar skuli íslenzk þjóð sitja uppi með
afdankaða afdala sósíalista sem boða nánast sama sósíaliska afturhaldið
og þeir gerðu fyrri hluta síðustu aldar. 

 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.2.2007 kl. 21:24

4 identicon

Man enginn eftir skattahækunum Óla grís og félaga um árði?

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 21:34

5 identicon

Hæ Einar minn, gaman að sjá að þú sért að auðga internet flóruna

Ertu ekki með síma, síma með númeri, símanúmeri? Mátt endilega maila öllu draslinu á mig. gummisig@gmail.com 

Guðmundur Bjarni Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband