Gott að mæta Dönum
sun. 28.1.2007
í 8 liða úrslitum, amk. skárra en Króatar eða Spánn, á góðum degi getum við unnið baunana, okkar menn sýndu það á móti Frökkum og Túnis að þeir eru með eitt af betri liðum heims, það sem háir Íslenska liðinu er að sjálfsögðu breiddin, en góð hvíld á morgun og brjáluð barátta á móti dönum, og þá er aldrei að vita.
Komin tími til að hefna ófagurra orða Extra Blaðsins í garð íslenskra kaupsýslumanna á haustdögum, og jarða blessaða baunana á handboltavellinum....
kv.
Snorri Steinn: Engin ávísun fyrir okkur í undanúrslit að mæta Dönum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og ekki síður lítilsvirðandi ummæla um íslenska liðið í fjölmiðlum í kvöld.
Telja strákana búna og verða "auðveld bráð."
Viðar Friðgeirsson, 28.1.2007 kl. 22:48
Já einmitt... draumaandstæðingar skv. Jyllands Posten og Joachim Boldsen líkir leiknum við hraðbraut sem hafi upp á marga spennandi möguleika að bjóða og þ.á.m. jafnvel HM-titil.... jæja... leyfum þeim a.m.k. að vera í skýjunum þangað til á þriðjudaginn þegar strákarnir ná að drekkja þeim í rigningunni :D
Hildur Sólveig (IP-tala skráð) 29.1.2007 kl. 00:14
Pabbi þú mát ekki tala svona illa um Danina
ólöf ósk , 31.1.2007 kl. 17:11
skamm skamm
ólöf ósk , 31.1.2007 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.