Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Ekki hægt að tengja við frétt um fjárnám í Árnessýslu.....
mán. 19.1.2009
Var að reyna tengja bloggfærslu við fréttina af handtöku skipunum á Árnessýslu, en það var ekki að gera sig, getur verið að hrammur ritskoðunar sé á vakt í kvöld.....
Sjá næstu færslu fyrir neðan.....
Ps.
Þetta eru reyndar bara smáaurar hjá þeim í RBS, eigum við ekki bara að taka þetta á okkur líka, við erum hvort eð er á fullu í að greiða niður skuldir annara sukkara, munar ekkert um að taka þetta í leiðinni........
2200 milljarðar hurfu í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eru þessir apakettir búnir að tapa glórunni....?
mán. 19.1.2009
Hver er ástæðan fyrir því að verið er að gera fjárnám fyrir það fyrsta, getur verið að það hafi e-ð að gera með að ríkistjórnin, fjármálaeftirlitið, seðlabankinn, aðrir bankar og svokallaðir "útrásavíkingar eru búnir að koma klakanum í þrot, í dag höfum við 18% verðbólgu, 18% stýrivexti, þal. ca. 27-9% vextir á yfirdráttarlánum og yfir 100% fall krónunar á 18 mánuðum.
Þetta er af síðu seðlabankans.
Gjaldmiðill | 19. jún. 2007 | 19. jan. 2009 | Breyting | |
Bandaríkjadalur | USD | 62,180 | 127,080 | 104,37 % |
Sterlingspund | GBP | 123,470 | 186,610 | 51,14 % |
Kanadadalur | CAD | 58,100 | 102,410 | 76,27 % |
Dönsk króna | DKK | 11,192 | 22,637 | 102,26 % |
Norsk króna | NOK | 10,311 | 18,520 | 79,61 % |
Sænsk króna | SEK | 8,845 | 15,713 | 77,65 % |
Svissneskur franki | CHF | 50,090 | 113,250 | 126,09 % |
Japanskt jen | JPY | 0,503 | 1,402 | 178,71 % |
SDR | XDR | 93,880 | 192,120 | 104,64 % |
Evra | EUR | 83,350 | 168,660 | 102,35 % |
Hvernig er hægt að ætlast til þess að nokkur maður geti staðið í skilum með húsnæðislánin sín, sem og önnur lán, megi það vera gengistryggð bílalán eða yfirdráttarlán, við þessi skilyrði....!
Að ætla handtaka fólk á vinnustöðum eða heimilum þess fyrir að geta ekki staðið í skilum vegna GLÆPAHUNDANNA sem stýrðu skútunni í strand, og eru enn að þvælast fyrir á strandstað, er sennilega dropinn sem fyllir mælinn.
Hingað til hafa mótmælin meira og minna verið friðsöm, en mér kæmi ekki á óvart að innan skamms komi til óeirða, þar sem jafnvel blóð mun renna, mannskepnan er nú einu sinni þannig innréttuð að hún ver sig og sýna með kjafti og klóm.
Er ekki kominn tími til rótækra aðgerða, man einhver hvað tælendingar gerðu í desember, þeir troðfylltu flugstöðvar og annað og settu þar með samgöngur úr skorðum.
Er þetta e-ð sem hægt er að gera hér? það er ljóst að mótmælafundirnir á Austurvelli eru ekki að gera nóg, amk. hefur enginn sýnt sóma sinn í að segja af sér, það er þörf á einhverju rótækara.