Seld!!!

Á mánudaginn fengum við tilboð í íbúðina uppá 17,5 og gerðum gagntilboð uppá 18,2 sem var samþykkt í gær.....Joyful afhending er 15 janúar!!!

Þetta er nátturlega bara frábært, og virkilega gott að þetta er komið svona langt, nú getum við farið að einbeita okkur að nýja húsinu, enda ekki vanþörf á, 15 jan er eftir 4 mánuði.....

Annars er það að frétta af húsinu að í gær voru burðarbitarnir hífðir upp, þannig að næst á dagskrá er að setja upp sperrur og síðan steypa restina, og þá er ekki mjög langt í þakið.....

Planið er að gera bílskúrinn og forstofuna íbúðarhæft (umþ. 80 m2) sem fyrst og flytja inní þann hluta húsins fyrir 15 jan, hitt kemur svo í fyllingu tímans.

Langar í lokin að benda á athyglisverða grein um vald svokallaðra "sérfræðinga" á Íslandi í dag, hérna. 

kv. Einar Ben. 

Ps. Hermann og Birna til hamingju með króann, og að sjálfsögðu færir þú Birnu Lazy Boy að gjöf, til brjóstagjafa.....Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

www.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.ws

SigrúnSveitó, 13.9.2007 kl. 01:01

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Velkominn til baka hélt að þú værir hættur að tjá þig til að gleðja mannkynið - flot fótboltasumar hjá þér - ég er ekki alveg eins brattur og tek þetta allt á mig.

Gísli Foster Hjartarson, 15.9.2007 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband