Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Hrokafullir Baunar......!

Það er víst engin lygi að "frændur" vorir danir, (jónu reykjandi svíar á sandölum, skv. Jóni Gnarr) eiga það til að detta í hroka, sér í lagi gagnvart okkur eybúum frá "litla" Íslandi, fátt fer meira fyrir brjóstið á þeim en að geta ekki rúllað yfir okkur í hverju sem er.

Og litli Ulrik Wilbek greip að sjálfsögðu til hinnar alkunnu afsökunar dana, er þeir tapa í (eða ná aðeins jafntefli, eins og í dag)  mikilvægum leikjum, að kenna dómurunum um.....   ....hann sá víst ekkert athugavert við það þegar Logi fékk rauða spjaldið, þegar hann hefði átt að fá 2 mínútur, eða hvernig vesalings sænsku dómararnir, féllu í gildru "leikarans" Nøddesbo í amk. tvígang, hann verður væntanlega tilnefndur til leiklistarverðlauna þetta árið.....

Ætli Wilbek hafi verið með þá leiklistarnámskeiði fyrir OL?

Annars til hamingju Ísland með að vera komnir í 8 liða úrslit OL.

 


mbl.is Ólafur: „Hrokafullir Danir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband